Byrja aftur

Miðað við þínar forsendur mælum við með eftirfarandi stöðvum

Rafbox býður viðskiptavinum Íslenskrar bílorku upp á fast verð á uppsetningu

Fjármögnun á hleðslustöð og uppsetningu er hægt að bæta við fjármögnun bílsins. Í langtímaleigu er hægt að bæta hleðslustöð og uppsetningu við leiguverð.

99.900 kr. m/vsk

Aukabúnaður AC

Öflugur kínverskur framleiðandi

Gresgying er öflugur kínverskur framleiðandi bæði AC hleðslustöðva fyrir heimili, fyrirtæki og sumarhús og öflugra DC hraðhleðslustöðva fyrir fyrirtæki og rekstraraðila hraðhleðsluneta. Góð reynsla á Íslandi en 22 kW AC Wallbox stöðvarnar og einnig hraðhleðslustöðvar í stærðum 60 kW, 120 kW og 180 kW hafa verið í notkun á Íslandi frá því snemma árs 2023.

Orkuskiptin á fullu. Rafbílar og tengiltvinnbílar í umferð á Íslandi í apríl 2025.

Rafbílar

Fólksbílar (M1)
Sendi-og pallbílar (N1)
Vörubílar (N2 & N3)
Hópferðabílar (M2 & M3)

Rafmagn

31.238
1.320
37
43

Tengiltvinn

24.763
8
0
0

Heildarfjöldi

57.409

Gögn fengin af vef Samgöngustofu

Afhverju að skipta yfir í rafmagn?

Óviss um kosti rafbíla? Hér eru nokkrir punktar sem okkur finnst skipta máli.

  • Rafmagn er nú þegar vinsælasta bílorkan á Íslandi – sem þýðir stóraukin þjónusta við rafbílaeigendur
  • Hagkvæmari rekstur – betra fyrir veskið
  • Sjálfbært Ísland – sem við megum vera stolt af
  • Ísland er fyrirmynd í grænni orku – sýnum gott fordæmi

Algengar spurningar

Er flókið að setja upp hleðslustöð heima eða við sumarhús?

Uppsetning hleðslustöðva skal alltaf gerð af fagmanni en venjulegar heimahleðslustöðvar (AC) eru oftast einfaldar í uppsetningu t.d. við einbýli, raðhús, sumarhús eða á starfsstöðvum fyrirtækja. Íslensk Bílorka býður þriggja fasa 22 kW AC hleðslustöð á einstaklega hagstæðu verði en stöðina má einnig tengja sem einfasa. Við bjóðum einnig fast verð í uppsetningu í samvinnu við rafvirkjameistara. Stærra verkefni er að setja upp AC hleðslustöðvakerfi við fjölbýli en Íslensk Bílorka getur leiðbeint um sérfræðinga á því sviði.

Hvernig er uppsetningarferlið og hvað er innifalið

Innifalið:

  • Akstur á staðinn á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri
  • Nágrannasveitarfélög við höfuðborgarsvæðið (allt að klst akstur frá
  • höfuðborgarsvæðinu) kostar aukalega 30.000 kr. með vsk
  • Uppsetning og tenging varnarbúnaðar í rafmagnstöflu
  • (lekaliðasjálfvar 3x32A)
  • Borun í gegnum einn vegg
  • Allt að 10 metra lagnaleið (með 5x4q eða 5x6q streng)
  • Uppsetning hleðslustöðvar á vegg
  • Kennsla á búnað
  • Lokaúttekt og tilkynning til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
  • Allt efni, kaplar, rör og smáefni sem jafnan þarf til að framkvæma verkið

Ekki innifalið:

  • Jarðvegsvinna
  • Breyting á rafmagnstöflu ef þörf krefur (t.d. breyting í þrífasa)
  • Lagnaefni umfram 10 metra lagnaleið
  • Uppsetningar hleðslustöðvar í fjölbýlishús

Mikilvægt er að töflubúnaður þar sem setja á upp stöðina standist

lágmarkskröfur áður en hafist er handa. Komi í ljós við skoðun

uppsetningaraðila að aðstæður á uppsetningarstað kalli á viðbótarkostnað

verður kaupanda gerð grein fyrir því áður en lengra er haldið og hvort

kaupandi vilji halda áfram með verkið og greiða fyrir viðbótarvinnu og efni.

Hver er munurinn á AC heimahleðslu og DC hraðhleðslu?

Venjuleg hleðsla (AC) er oftast kölluð heimahleðsla en nýtist einnig við sumarhús eða hjá fyrirtækjum. Hún er hugsuð til að hlaða þegar lengri tími er til reiðu t.d. yfir nótt eða þegar möguleiki er að stoppa lengur en 3-4 tíma.

AC hleðslustöðvar nýta riðstraum (AC, Alternate Current) og er algengast að um sé að ræða 22 kW eins og þær sem Bílorku býður til sölu. AC hleðslustöðvar er hægt að nota til að hlaða bæði hreina rafbíla og tengiltvinnbíla (PHEV). Tengiltvinnbílar geta oftast nýtt 3,7 kW að hámarki. Hvað varðar hreina rafbíla þá ræður bíllinn hvað hann getur nýtt af hleðsluetu stöðvarinnar. Sumir rafbílar geta nýtt allt að 7,4 kW, margir 11 kW og þeim rafbílum fer fjölgandi sem geta fullnýtt 22 kW hleðslugetuna.

Hraðhleðsla (DC) er hins vegar hugsuð til að skjóta orku inn á rafhlöðu bílsins á stuttum tíma yfir daginn eða á lengri ferðum. Hraðhleðslustöðvar nýta jafnstraum (DC, Direct Current) og eru til í mörgum útfærslum og geta alla jafna eingöngu hlaðið hreina rafbíla þó til séu tengiltvinnbílar sem geta nýtt hraðhleðslu. Eins og nafnið hraðhleðsla gefur til kynna hlaða hraðhleðslustöðvar mun hraðar en venjulegar AC hleðslustöðvar. Bílorka býður úrval hraðhleðslustöðva með mismunandi afkastagetu.

Þarf ég að setja upp þriggja fasa hleðslu?

Nei, einfasa getur alveg dugað og er eini munurinn að með þriggja fasa hleðslustöð sem tengd er við þriggja fasa rafmagn tekur styttri tíma að hlaða rafbílinn. Það þarf hins vegar ekki að skipta máli ef mögulegt er að hlaða yfir kvöld eða nótt og því nægur tími til að fylla rafhlöðu bílsins á hleðslutímanum sem gæti þá verið um 7-8 tímar. Það er þó háð stærð rafhlöðunnar því stærri rafhlöðu tekur lengri tíma að hlaða.

Hins vegar getur verið sniðugt að setja upp þriggja fasa hleðslustöð strax eins og Íslensk Bílorka býður til sölu en láta uppsetningaraðila tengja hana sem einfasa. Þegar skipt er í bíl með stærri rafhlöðu eða akstursþörfin eykst og hlaða þarf oftar eða meira þá er hægt að skipta yfir í þriggja fasa rafmagn og hleðslustöðin er þá tilbúin að nýta það til að auka hleðsluhraða.

Hvað tekur langan tíma að fullhlaða með AC heimahleðslu?

Hleðsluhraði og hleðslutími í heimahleðslu ræðst af nokkrum þáttum.

  • Í fyrsta lagi hver er hleðslustaða rafhlöðu þegar hleðsla hefst.
  • Í öðru lagi stærð rafhlöðu og hvort fullhlaða eigi rafhlöðuna en dagsdaglega er gott að hlaða upp í 80-90% sem er stillanlegt í bílnum en fyrir lengri ferðalög er mikilvægt að hlaða í 100%.
  • Í þriðja lagi skiptir máli hvort um sé að ræða eins fasa eða þriggja fasa hleðslustöð eða hvort notaður er hleðslutæki sem stungið er í venjulegan 16 ampera tengil. Alltaf er mælt með að setja upp hleðslustöð, bæði til aukins öryggis og til að fá meiri hleðsluhraða.
  • Í fjórða lagi skiptir hleðslustýring bílsins máli þ.e. hvað hann getur tekið við mikilli hleðslu mælt í kW. Það er misjafnt eftir rafbílum. Sumir rafbílar eru einfasa og geta tekið við 7,4 kW og þá skiptir ekki máli hvort hleðslustöðin er þriggja fasa því bíllinn er takmarkandi þátturinn. Síðan eru rafbílar sem eru þriggja fasa og geta tekið við 11 kW og rafbílum fjölgar sem eru þriggja fasa og geta tekið við 22 kW.
  • Í fimmta lagi skiptir hitastig rafhlöðunnar máli sem meðal annars ræðst af útihitastigi.Ef við tökum dæmi af algengum rafbíl sem getur tekið við 11 kW í AC hleðslu, hleðslustöðin er þriggja fasa, rafhlaðan er 77 kWh að stærð og rafhlaðan er 20% hlaðin við upphaf hleðslu þá má búast við að það taki tæpar 6 klukkustundir að fullhlaða. Ef hlaðið er fyrir venjulegan, daglegan akstur þá er oftast mælt með að hlaða ekki hærra en í 90% og því myndi taka um 5 klukkustundir að hlaða úr 20% í 90%.
Er hagkvæmara að keyra rafmagnsbíl en eldsneytisbíl jafnvel þó greiða þurfi km gjald af rafbíl?

Já, mun hagkvæmara er að keyra rafbíl en eldsneytisbíl jafnvel þó greiða þurfi kílómetragjald. Orkunýtni rafbíla og því er orkunotkun þeirra mun minni en annarra bíla. Slitfletir eru færri, viðhald því minna og engin olíuskipti þarf að framkvæma á rafbíl.

Ef borinn er saman orkukostnaður bensínbíls sem eyðir um 7 lítrum/100 km við rafmagnsbíl af sambærilegri stærð sem eyðir um 22 kWh/100 km og sem greiðir 6 kr. í kílómetragjald má reikna með að aksturskostnaður á mánuði sé rúmlega 13 þús. krónum lægri á rafbíl eða sem nemur ríflega 50%. Útreikningarnir miðast við að bensínlítri kosti 300 kr. og kWh í heimahleðslu kosti 17 kr.

Kílómetragjald mun leggjast á öll ökutæki óháð orkugjafa frá og með 1. janúar 2025.

Munurinn eykst rafbílnum í hag enn frekar þegar kostnaður við viðhald og olíuskipti er reiknaður á bensínbílinn og þá gæti sparnaðurinn numið 60-70% og sparnaður gæti numið ríflega 17 þús. kr. á mánuði. Það jafngildir um 30-40 þús. kr. í brúttótekjur á mánuði. Reiknaðu sparnaðinn miðað við þínar forsendur.

Getur góður hleðsluhraði bætt upp fyrir minni drægni?

Já hleðsluhraði í hraðhleðslu skiptir miklu máli til að auka drægni innan dagsins á lengri ferðalögum.

Drægni innan dagsins er samspil fimm þátta:

  • Eyðslu bílsins í kWh/100 km.
  • Stærðar rafhlöðu í kWh.
  • Hraðhleðslugetu bílsins í kW.
  • Afkastagetu hraðhleðslustöðvar í kW.
  • Hlutfallslega raundrægni miðað við uppgefna WLTP drægni.

Tökum dæmi af rafbíl sem er gefinn upp fyrir 450 km drægni á rafhlöðu, hleðslugeta hans í hraðhleðslu er uppgefin 150 kW og hann eyðir um 22 kWh/100 km. Ef hann er hlaðinn í 150 kW hraðhleðslustöð þá má búast við að hægt sé að ná um 75 kWh á 30 mínútum í 150 kW hraðhleðslustöð. Það gæti gefið um 270 km í viðbótardrægni (75 kWh/22*100*0,8) miðað við að raundrægni sé um 80% af uppgefinni drægni.

Þetta er það sem viðskiptavinir Bílorku hafa að segja

Uppsetningin gekk upp eins og í sögu á heimahleðslustöðinni og er hún komin í fulla notkun á heimilinu. Mæli óhikað með íslenskri Bílorku og þjónustan var upp á 10.

Einar Thor

Framkvæmdarstjóri

Íslensk Bílorka er hluti af Brimborg

© Höfundarréttur Brimborg | Persónuvernd | Skilmálar | KT. 701277-0239 | VSK.NR. 11650