Hraðhleðslustöð 480 kW DC þar sem stöðin sjálf er á frístandandi á undirstöðu tengd við allt að 8 hleðslustaura. Hægt er að velja fyrir hvern hleðslustaur 300A kapla með tveimur CCS2 tengjum að hámarki 12 tengi eða velja 500A vökvakælda kapla með einu CCS2 tengi að hámarki 8 tengi eða blöndu þarna á milli. Kapalhaldari á staurum.

  • Gríðarlega öflug og afkastamikil hraðhleðslustöð.
  • Hentug fyrir stærri rafbílaflota og rafbíla með mikilli hleðslugetu.
  • Hentar sérstaklega vel fyrir vörubíla og hópferðabíla.
  • Mögulegt að veita viðskiptavinum aðgengi gegn greiðslu.
  • Hægt að setja upp þannig að hleðslustaurar séu við enda stæða eða sem gegnumakstursstöð.
  • Hraðhleðslustöð með val um allt að 8 hleðslustraura með kapalhaldara.
  • Hver hleðslustaur getur verið með annað hvort tvö CCS2 tengi á 300A kapli eða eitt CCS2 tengi á 500A kapli.
  • Festiaðferð: Frístandandi á undirstöðu tengd við frístandandi hleðslustaura hver á undirstöðu.
  • Hraðhleðslustöðin þarf mjög öfluga heimtaug.
  • Einföld aðgangsstýring að hraðhleðslustöð, mögulegt að tengja við eONE (e1) appið.
  • Hraðhleðslustöðin er fáanleg keypt eða á rekstrarleigu.

 

Hraðhleðslustöðvar sem henta á starfsstöðvar fyrirtækja eða við verslanir, þjónustu, veitingastaði, gististaði, tjaldsvæði og við þjóðvegi hvort sem er til eigin nota fyrir rafbílaflotann eða einnig opnar almenningi. Íslensk Bílorka býður hraðhleðslustöðvar í mismunandi stærðum og með mismunandi afkastagetu sem henta mismunandi aðstæðum og stærð rafbílaflota fyrirtækja.

Íslensk Bílorka gerir fría úttekt og metur hvernig og hversu margar hleðslustöðvar þarf fyrir bílaflota fyrirtækisins, bíla starfsfólks, samstarfsfyrirtækja og/eða viðskiptavina. Að úttekt lokinni er hægt að meta hvaða hleðslustöðvar henta þörfum fyrirtækisins og aðstæðum best. Fjöldi rafbíla, tíðni og lengd hverrar hleðslu ráða mestu þegar kemur að því að meta hversu margar hleðslustöðvar þarf og hve afkastamikil hver hleðslustöð þarf að vera.

Íslensk Bílorka býður hraðhleðslustöðvar til fyrirtækja til sölu með uppsetningu en fyrirtækin geta valið um hvort þau sjái sjálf um rekstur hleðslustöðva eða vilja hafa þær á rekstrarleigu.

Sendu okkur fyrirspurn fyrir nánari upplýsingar og tilboð í hraðhleðslustöðvar og uppsetningu. Við höfum samband um hæl.

Ábyrgð. Kaupandi hefur rétt samkvæmt íslenskum lögum til að bera fram kvörtun um galla í allt að 2 ár frá kaupdegi.

Specification

Straumflutningsafköst kapals

300A eða 500A vökvakældur

Stærð (lengd, dýpt, hæð)

Stöð: 1300mm x 900mm x 1800mm | 300A staur 400mm x 300mm x 2100mm með kapalhaldara | 500A staur 820mm x 300mm x 2100mm með kapalhaldara

Nettó þyngd

Stöð: 1000 kg

Festiaðferð

Frístandandi á undirstöðu bæði hleðslustöðin og hleðslustaurar

Lengd kapals

4,5m ef 300A festur í kapalhaldara | 3m ef 500A vökvakældur festur í kapalhaldara

Hámark hleðsluafköst stöðvar

480 kW og hægt að raðtengja tvær í 960 kW

Fjöldi CCS2 tengja

Allt að 12 á 6 hleðslustaurum eða 8 vökvakæld á 8 hleðslustaurum

Hleðsluafköst tengis m.v. 1 bíl í hleðslu

Ef 300A kapall þá @400V = 120 kW | @800V = 240 kW. Ef 500A vökvakældur kapall þá @400V = 200 kW | @800V = 400 kW

Lágmarksstærð heimtaugar

762A

Hraðhleðslustöð 480 kW DC | CCS2

GRDCKW480A500

Íslensk Bílorka er hluti af Brimborg

© Höfundarréttur Brimborg | Persónuvernd | Skilmálar | KT. 701277-0239 | VSK.NR. 11650